Guðný Árnadóttir, leikmaður FH, hefur verið boðið til æfinga hjá Kristianstads en liðið leikur í sænsku úrvalsdeildinni.
Sif Atladóttir leikur með liðinu á meðan Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar það. Guðný mun vera hjá liðinu í viku.
Sif Atladóttir leikur með liðinu á meðan Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar það. Guðný mun vera hjá liðinu í viku.
Hún er fædd árið 2000 og hefur hún spilað með meistaraflokki FH, síðustu tvö ár en hún hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands.
Guðný hefur leikið 15 leiki fyrir FH í ár og skorað í þeim eitt mark.
Athugasemdir