Thomas Delaney, miðjumaður Kaupmannahafnar, gerði ótrúlegt mark í frábærum 4-0 sigri á Club Brugge í Meistaradeildinni í gær.
Kaupmannahöfn er í öðru sæti riðilsins með fjögur stig eftir sigurinn, en liðið náði jafntefli á útivelli gegn Porto í fyrstu umferð. Leicester er á toppnum með sex stig, en Kaupmannahöfn á útileik gegn Englandsmeisturunum 18. október.

Delaney skoraði annað mark leiksins í gær, sem kom skömmu eftir að Ludwig Augustinsson brenndi af vítaspyrnu.
Myndbrot af marki Delaney er hægt að sjá á opinberum Youtube aðgangi knattspyrnuliðs Kaupmannahafnar, eða með því að smella hér.
Athugasemdir