Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 28. september 2016 14:12
Elvar Geir Magnússon
U21 hópurinn fyrir leikina mikilvægu - Kristján Flóki aftur inn
Heiðar Ægisson og Ævar Ingi Jóhannesson.
Heiðar Ægisson og Ævar Ingi Jóhannesson.
Mynd: KSÍ
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Skotlandi 5. október á Vikingsvelli og Úkraínu 11. október á Laugardalsvelli í undankeppni EM 15/17.

Íslenska liðið er í góðri stöðu í riðlinum og getur með sigrum í leikjunum sem eftir eru tryggt sér sæti í lokakeppni EM 2017 sem fram fer í Póllandi.

Fyrri leikurinn er gegn Skotlandi á Víkingsvelli og eru aðeins 900 miðar í boði á þann leik. Seinni leikurinn er gegn Úkraínu á Laugardalsvelli og mun miðasala á þann leik opna síðar.

Ein breyting er á hópnum frá síðasta verkefni. Kristján Flóki Finnbogason, sóknarmaður FH, kemur inn fyrir Fjölnismanninn Hans Viktor Guðmundsson.

Hópurinn:
Rúnar Alex Rúnarsson, Nordsjælland
Frederik Schram, Roskilde
Anton Ari Einarsson, Valur

Orri Sigurður Ómarsson, Valur
Hjörtur Hermannsson, Bröndby
Aron Elís Þrándarson, Álasund
Árni Vilhjálmsson, Breiðablik
Elías Már Ómarsson, Gautaborg
Adam Örn Arnarsson, Álasund
Böðvar Böðvarsson, FH
Oliver Sigurjónsson, Breiðablik
Ævar Ingi Jóhannesson, Stjarnan
Daníel Leó Grétarson, Álasund
Heiðar Ægisson, Stjarnan
Viðar Ari Jónsson, Fjölnir
Albert Guðmundsson, PSV
Davíð Kristján Ólafsson, Breiðablik
Kristján Flóki Finnbogason, FH
Óttar Magnús Karlsson, Víkingur
Þórður Þorsteinn Þórðarson, ÍA
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner