Willum Þór Willumsson var fyrirliði 2. flokks Breiðabliks sem tapaði 0-3 á heimavelli fyrir sterku liði Ajax í Evrópukeppni unglingaliða í dag. Liðin mætast í Hollandi í næsta mánuði.
„Það var mjög gaman að spila þennan leik og þetta er góð reynsla fyrir okkur. Við komum bara tvíefldir til leiks í næsta leik, þetta var mjög erfiður leikur," segir Willum en faðir hans er Willum Þór Þórsson, þjálfari KR.
Ajax er þekkt fyrir að vera með eina öflugustu fótboltaakademíu Evrópu.
„Þeir eru rosalega góðir. Þeir eru góðir á boltann, með góðar færslur, góðir að spila þríhyrninga, það er erfitt að elta þá. Þeir eru með 3-4 sem eru alveg geggjaðir."
Það vantaði sterka leikmenn í Breiðabliksliðið en félagið hefur lánað öfluga leikmenn úr 2. flokknum í neðri deildirnar og voru þeir ekki löglegir í þessu verkefni.
„Við erum búnir að lána marga sterka leikmenn en við erum með góðan og breiðan hóp. Það koma góðir strákar í staðinn. Það kemur maður í manns stað."
„Tempóið var miklu meira, þetta var mun erfiðara. Ég held að ég hafi hlaupið tvöfalt miðað við venjulegan 2. flokks," segir Willum en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir