fim 28. september 2017 13:21
Magnús Már Einarsson
Íslenski landsliðshópurinn - Þrjár breytingar
Icelandair
Arnór Smárason er í hópnum.
Arnór Smárason er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil er í banni gegn Tyrklandi.
Emil er í banni gegn Tyrklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti nú rétt í þessu landsliðshópinn fyrir komandi leiki gegn Tyrklandi þann 6. október og Kosóvó 9. október.

Þessir leikir skera úr um það hvort Ísland komist beint á HM í Rússlandi á næsta ári, fari í umspil eða sé úr leik. Ljóst er að fjögur stig í leikjunum tveimur tryggja að minnsta kosti sæti í umspili.

Heimir velur þrjá nýja menn í hópinn frá því í síðasta verkefni en 25 leikmenn eru í hópnum að þessu sinni. Einn leikmaður dettur úr hópnum frá því síðast en Ögmundur Kristinsson snýr aftur í hópinn og Ingvar Jónsson dettur út.

Arnór Smárason kemur nýr inn í hópinn. Viðar Örn Kjartansson kemur einnig inn í hópinn frá því í síðasta verkefni. Viðar var ekki í hópnum gegn Finnum í þessum mánuði en hann kom síðan inn í hópinn fyrir leikinn gegn Úkraínu.

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, er að glíma við meiðsli en hann missti af leik Cardiff og Leeds í vikunni. Hann er í hópnum.

Emil Hallfreðsson er í leikbanni gegn Tyrklandi en hann getur spilað leikinn gegn Kosóvó. Emil fer með íslenska liðinu til Tyrklands og tekur þátt í öllum æfingum þar.

Markmenn
Hannes Þór Halldórsson (Randers FC)
Ögmundur Kristinsson (Excelsior)
Rúnar Alex Rúnarsson (Nordsjælland)

Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson (Hammarby)
Ragnar Sigurðsson (Rubin Kazan)
Kári Árnason (Aberdeen)
Ari Freyr Skúlason (Lokeren)
Sverrir Ingi Ingason (Rostov)
Hörður Björgvin Magnússon (Bristol City)
Hjörtur Hermannsson (Bröndby)
Jón Guðni Fjóluson (Norköping)

Miðjumenn
Aron Einar Gunnarsson (Cardiff)
Emil Hallfreðsson (Udinese)
Gylfi Þór Sigurðsson (Everton)
Birkir Bjarnason (Aston Villa)
Jóhann Berg Guðmundsson (Burnley)
Ólafur Ingi Skúlason (Karabukspor)
Arnór Ingvi Traustason (AEK Aþena)
Rúnar Már Sigurjónsson (Grasshoppers)
Rúrik Gíslason (Nurnberg)
Arnór Smarason (Hammarby)

Sóknarmenn
Alfreð Finnbogason (Augsburg)
Jón Daði Böðvarsson (Reading)
Björn Bergmann Sigurðarson (Molde)
Viðar Örn Kjartansson (Maccabi Tel Aviv)



Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner