Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. október 2016 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bayern og Lewandowski ræða nýjan samning
Robert Lewandowski
Robert Lewandowski
Mynd: Getty Images
Formaður Bayern Munchen, Karl-Heinz Rummenigge er bjartsýnn á að Robert Lewandowski muni skrifa undir nýjan samning við þýsku meistarana.

Samningur Póverjans rennur út árið 2019 en forráðarmenn Bayern vilja gera samning til 2021 þar sem hann hefur staðið sig afar vel síðan hann kom til félagsins frá Dortmund fyrir tveim árum.

Lewandowski á enn eftir að skrifa undir nýjan samning en það verður að teljast líkleg niðurstaða á næstu dögum.

Hann hefur skorað tíu mörk í 13 leikjum fyrir Bayern á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner