Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er ánægður með hrósið sem hann fékk frá Sir Alex Ferguson í gær.
Sir Alex hrósaði Klopp í gær og sagði að Liverpool geti blandað sér í baráttuna um titilinn.
Sir Alex hrósaði Klopp í gær og sagði að Liverpool geti blandað sér í baráttuna um titilinn.
Ferguson stýrði erkifjendunum Manchester United í áraraðir og Klopp er ekki alveg viss hvort hann megi hrósa honum.
„Má ég segja að ég kann vel við Alex Ferguson?" sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.
„Ég hitti hann áður en ég varð stjóri Liverpool. Það er fallegt hjá honum að segja eitthvað jákvætt um okkur."
Athugasemdir