Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 28. október 2016 11:00
Magnús Már Einarsson
Liverpool að kaupa 15 ára varnarmann
Mynd: Getty Images
Liverpool vonast til að semja við varnarmanninn unga Emeka Obi á næstunni samkvæmt frétt Sky.

Obi er einungis 15 ára gamall en hann er á mála hjá Bury í ensku C-deildinni.

Obi þykir gríðarlega efnilegur en hann hefur nú þegar komið við sögu í aðalliði Bury.

„Ég held að hann sé efnilegastur í landinu núna, 15 ára gamall," sagði David Flitcroft, stjóri Bury.

Fleiri félög hafa sýnt Obi áhuga en hann var meðal annars á reynslu hjá Stoke í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner