Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. október 2016 14:53
Magnús Már Einarsson
Stóri Sam næsti stjóri Jóns Daða?
Stóri Sam er atvinnulaus.
Stóri Sam er atvinnulaus.
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce, Nigel Pearson og Paul Lambert eru á meðal þeirra sem koma til greina sem næsti stjóri Wolves. Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson er á meðal leikmanna Wolves.

Walter Zenga var rekinn frá Wolves í vikunni eftir einungis 87 daga í starfi.

Pearson hefur farið í starfsviðtal hjá Wolves en hann var rekinn frá Derby á dögunum.

Allardyce kemur einnig til greina en hann hætti sem þjálfari enska landsliðsins á dögunum eftir uppljóstranir í The Telegraph.

Lambert hætti hjá Blackburn í vor en hann stýrði áður nágrönnum Wolves í Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner