Valur er Íslandsmeistari 40 ára og eldri eftir sigur á Stál-úlfi í gær.
Liðið vann þar með alla sjö leiki sína á mótinu og varði þar með titilinn en þeir unnu einnig í fyrra.
Valur og Stál-úlfur voru efst og jöfn fyrir leikinn í gær og var því um hreinan úrslitaleik að ræða en Valur hafði betur með fimm mörkum gegn tveim og hafnar Stál-úlfur því í 2. sæti.
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals í Pepsi-deildinni og fyrirliði liðsins í áraraðir spilaði með þeim ásamt fyrrum landsliðsmarkmanninum, Kjartani Sturlusyni.
Athugasemdir