Ásgeir Þór Ingólfsson gæti mögulega farið frá Haukum en hann er að skoða framtíð sína.
Ásgeir spilaði tuttugu leiki með Haukum í sumar og skoraði tvö mörk en hann hefur leikið með liðinu nánast allan sinn feril.
Ásgeir spilaði tuttugu leiki með Haukum í sumar og skoraði tvö mörk en hann hefur leikið með liðinu nánast allan sinn feril.
,,Ég er samningslaus, og pollslakur í öllum aðgerðum," sagði Ásgeir við Fótbolta.net í gær.
,,Ég er á leið í mín fyrstu háskólapróf svo ég er búinn að vera með hugann við þau."
Ásgeir spilaði með Val í Pepsi-deildinni árið 2012 og hann gæti verið á leið aftur í efstu deild.
,,Ég hef heyrt af eitthverjum áhuga en ekkert meira en það. Ég æfi með Haukum og þeir hafa sýnt áhuga á að halda mér. Ég er bara að skoða þetta í rólegheitum."
Athugasemdir