Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. nóvember 2014 20:43
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Wijnaldum skaut PSV í 32-liða úrslitin
Memphis Depay skoraði fyrir PSV í kvöld
Memphis Depay skoraði fyrir PSV í kvöld
Mynd: Getty Images
Estoril 3 - 3 PSV
0-1 Memphis Depay ('6 )
1-1 Toze ('12 )
1-2 Luciano Narsingh ('14 )
2-2 Kuca ('30 )
3-2 Diogo Amado ('39 )
3-3 Georginio Wijnaldum ('82 )

Estoril og PSV gerðu í kvöld 3-3 jafntefli í Evrópudeildinni en gestirnir jöfnuðu undir lok leiksins.

Hinn ungi og efnilegi Memphis Depay kom PSV yfir á 6. mínútu leiksins áður en Toze jafnaði metin. Luciano Narsingh kom PSV aftur yfir tveimur mínútum síðar.

Kuca jafnaði metin fyrir heimamenn eftir hálftíma leik áður en Diogo Amado kom Estoril yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Georginio Wijnaldum tryggði PSV svo stig undir lok leiksins og lokatölur því 3-3. Mikilvægt jöfnunarmark en PSV er komið áfram í 32-liða úrslit á meðan Estoril er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir PSV.
Athugasemdir
banner
banner