Pescara og Virtus Lanciano gerðu 1-1 jafntefli í ítölsku B-deildinni í kvöld en Birkir Bjarnason kom við sögu í leiknum.
Gaetano Monachello kom gestunum í Lanciano yfir í leiknum áður en Federico Melchiorri jafnaði metin undir lok leiksins.
Birkir Bjarnason kom inná sem varamaður í lið Pescara á 56. mínútu en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðustu daga.
Pescara er í fimmtánda sæti með 17 stig á meðan Lanciano er í fimmta sæti með 24 stig.
Athugasemdir