Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. nóvember 2014 12:47
Elvar Geir Magnússon
Luke Shaw frá í nokkrar vikur - Blind farinn í frí
Shaw í leiknum gegn Arsenal.
Shaw í leiknum gegn Arsenal.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Luke Shaw spilar ekki næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á ökkla í sigrinum gegn Arsenal.

Þetta opinberaði Louis van Gaal á fréttamannafundi Manchester United.

Sóknarmaðurinn Radamel Falcao er að stíga upp úr meiðslum og gæti Kólumbíumaðurinn komið við sögu gegn Hull á morgun. Falcao hefur ekki spilað síðan 20. október.

Þá opinberaði Van Gaal það að hann hefur sent miðjumanninn Daley Blind í frí en hollenski landsliðsmaðurinn meiddist í 6-0 sigri gegn Lettlandi fyrr í þessum mánuði,

„Ég gaf honum frí. Á fyrstu vikum endurhæfingarinnar er hvíldin mikilvægari en æfingin. Hann fékk ekki langt frí í sumar vegna HM," sagði Van Gaal.
Athugasemdir
banner
banner