Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 28. nóvember 2015 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Caballero: Kom síðast inn á þegar ég var 13 ára
Willy kemur inn fyrir Hart
Willy kemur inn fyrir Hart
Mynd: Getty Images
Willy Caballero er óhræddur við að leysa Joe Hart af í marki Man City þegar liðið mætir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Hart fór meiddur af velli þegar Man City tapaði fyrir Juventus í Meistaradeild Evrópu í vikunni en talið er að enski markvörðurinn verði frá í 10 daga.

„Það er ekki gott fyrir neinn að Joe sé meiddur en ég verð að stíga upp og nýta tækifærið mitt. Það er ekki auðvelt að standa sig vel þegar þú spilar bara einn og einn leik en ef maður fær þrjá til fjóra leiki getur maður sýnt sitt rétta andlit", segir Caballero.

„Við eigum mikilvæga leiki framundan og ég er tilbúinn í þetta verkefni. Ég vil hjálpa liðinu."

Argentínumaðurinn minnist þess ekki að hafa áður þurft að koma inn af varamannabekknum í miðjum leik á atvinnumannaferli sínum.

„Ég var örugglega í kringum 13 ára aldur hjá Boca Juniors þegar ég kom síðast inn á af bekknum. Það gerist ekki oft fyrir markmenn", segir Caballero.



Athugasemdir
banner
banner