Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 28. nóvember 2015 14:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Ipswich fór létt með Jóa Berg og félaga
Jóhann Berg spilaði allan leikinn gegn Ipswich í dag
Jóhann Berg spilaði allan leikinn gegn Ipswich í dag
Mynd: Getty Images
Charlton Athletic 0 - 3 Ipswich Town
0-1 Daryl Murphy ('28 )
0-2 Freddie Sears ('45 )
0-3 Daryl Murphy ('68 )

Slæmt gengi hjá Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Charlton virðist engan endi ætla að taka, en Charlton tók á móti Ipswich í dag.

Um miðbik fyrri hálfleiks kom Daryl Murphy Ipswich yfir og rétt fyrir leikhlé bætti Freddi Sears við marki fyrir gestina.

Daryl Murphy var svo aftur á ferðinni um miðjan seinni hálfleikinn og var það lokamark leiksins og lokaniðurstaðan því 3-0 fyrir Ipswich gegn Charlton.

Jóhann Berg lék allan leikinn í liði Charlton, sem er með 16 stig í 20. sæti. Ipswich er hins vegar með 28 stig í sjöunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner