Leicester City 1 - 1 Manchester United
1-0 Jamie Vardy ('24)
1-1 Bastian Schweinsteiger ('45)
1-0 Jamie Vardy ('24)
1-1 Bastian Schweinsteiger ('45)
Toppslag Leicester City og Manchester United var að ljúka rétt í þessu með tíðindalitlu jafntefli.
Jamie Vardy bætti markametið í ensku deildinni þegar hann kom Leicester yfir um miðjan fyrri hálfleik og skoraði þar með í sínum ellefta deildarleik í röð.
Rauðu djöflarnir héldu boltanum vel innan liðsins en sköpuðu sér mjög lítið af færum, þrátt fyrir það tókst þeim að jafna rétt fyrir leikhlé þegar Bastian Schweinsteiger skallaði knöttinn í netið af stuttu færi.
Síðari hálfleikurinn var enn leiðinlegri en sá fyrri þangað til í lokin þegar gestirnir frá Manchester pressuðu stíft og sköpuðu sér nokkur færi, án þess að koma knettinum þó í netið.
Leiknum lauk með jafntefli og er Leicester með 29 stig eftir jafnteflið, við hlið Manchester City á toppnum, á meðan Man Utd er með 28 stig í þriðja sæti og þar á eftir kemur Arsenal með 26 og leik til góða, gegn Norwich á morgun.
Athugasemdir