lau 28. nóvember 2015 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Juninho: Willian mun bæta metið mitt
Aukaspyrnunar eru stórhættulegar hjá Willian
Aukaspyrnunar eru stórhættulegar hjá Willian
Mynd: Getty Images
Juninho Pernambucano, trúir því að landi sinn, Willian muni bæta met sitt í því að skora fjögur aukaspyrnumörk á einu tímabili í Meistaradeildinni.

Juninho skoraði fjögur aukaspyrnumörk 2005-06 tímabilið þegar hann lék með Lyon, en Willian jafnaði þann fjölda með marki sínu gegn Maccabi Tel-Aviv á þriðjudaginn.

Juninho er stoltur af landa sínum og hann trúir því að Willian muni bæta met sitt á endanum.

"Það er gott að það var Brassi, og frá þessari nýju kynslóð góðu leikmanna sem við eigum," sagði Juninho í samtali við Globo Esporte.

Þetta er mjög ánægjulegt fyrir mig vegna þess að þegar ég skoraði þesssi fjögur mörk, þá sagði enginn neitt."

"Mín hefur verið minnst fyrir það sem Willian hefur gert, og ég held að hann hafi alla burði til þess að bæta metið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner