þri 28. nóvember 2017 10:47
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Langskot Birnis og mörk Víkinga í sigri gegn KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir fóru fram í Bose bikarnum í gærkvöldi og voru þeir báðir sýndir í beinni útsendingu á SportTv.

Víkingur Reykjavík vann 3-1 sigur gegn KR en hægt er að sjá mörkin á Sport.is með því að smella hérna.

Nikolaj Hansen og Örvar Eggertsson komu Víkingsliðinu 2-0 yfir áður en Kennie Chopart minnkaði muninn fyrir KR-inga. Patrik Atlason innsiglaði svo sigur Víkinga.

Fyrr um kvöldið vann Fjölnir 1-0 sigur gegn FH en eina mark leiksins skoraði Birnir Snær Ingason af löngu færi.

Birnir sá að Gunnar Nielsen, markvörður FH, var kominn út úr marki sínu og lét vaða af 40 metra færi. Skot Birnis söng í netinu eins og sjá má hér að neðan.

Riðlakeppni mótsins lýkur mánudaginn 4. desember en þá verða tveir leikir í Egilshöll. Fjölnir mætir Stjörnunni og KR leikur gegn Breiðabliki.


Athugasemdir
banner
banner
banner