Fjölnismenn unnu verðskuldaðan 2-1 sigur á KR í Reykjavíkurmótinu í kvöld og tryggðu sér þar með sigur í A-riðli. Bæði liðin voru komin í undanúrslit fyrir kvöldið.
„Ég var mjög ánægður með strákana. Þeir spiluðu nokkuð vel og voru kvikir í sóknarleiknum. Það voru ungir strákar að spreyta sig og þeir voru gífurlega flottir," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn.
Aron Sigurðarson skoraði gull af marki í leiknum en engin myndavél var í húsinu til að ná því.
„Þetta var opinn leikur og skemmtilegur. Það var fullt af góðum ungum strákum hérna í kvöld og það er klárlega bjart framundan í Grafarvoginum."
En hvað með leikmannamálin?
„Við erum alltaf að skoða það og líklega koma 2-3 leikmenn fyrir tímabil. Það verður einhver styrking."
Viðtalið við Ágúst má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Smelltu hér til að sjá textalýsingu frá leiknum
Athugasemdir