Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 29. janúar 2015 22:51
Daníel Freyr Jónsson
Reykjavíkurmótið: Fjölnir tryggði sér toppsætið
Fjölnir lagði KR.
Fjölnir lagði KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir 2 - 1 KR
0-1 Gunnar Þór Gunnarsson ('17)
1-1 Aron Sigurðarson ('40)
2-1 Birnir Snær Ingason ('50)

Fjölnir tryggði sér í kvöld efsta sætið í A-riðli Reykjavíkurmótsins með 2-1 sigri á KR.

Fínn hraði var á leiknum og voru það KR-ingar sem skoruðu fyrsta markið. Það gerði Gunnar Þór Gunnarsson á 17. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið.

Fjölnismenn jöfnuðu metin rúmum 20 mínútum síðar þegar Aron Sigurðarson kom með þrumufleyg utan teigs sem söng í samskeytunum.

Sigurmark leiksins kom síðan skömmu eftir leikhlé. Birnir Snær Ingason gerði markið, en hann er 18 ára gamall.

Bæði lið fara í undanúrslit mótsins ásamt Leikni, en á morgun kemur í ljós hvert fjórða liðið verður.

Smelltu hér til að sjá textalýsingu frá leiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner