Shola Ameobi hefur gert samning við Crystal Palace út þetta tímabil.
Ameobi var án félags eftir að hafa yfirgefið Gaziantep í Tyrklandi í síðasta mánuði.
Ameobi var án félags eftir að hafa yfirgefið Gaziantep í Tyrklandi í síðasta mánuði.
Hinn 33 ára gamli Ameobi fór frá Newcastle síðastliðið sumar eftir að hafa skorað 79 mörk í 397 leikjum með liðinu.
Alan Pardew, stjóri Palace, þekkir Ameobi frá því hjá Newcastle á sínum tíma.
,,Önnur félög höfðu áhuga en samband mitt við Alan var stór þáttur í ákvörðun minni," sagði Amoebi.
Athugasemdir