sun 29. mars 2015 12:10
Arnar Geir Halldórsson
Busquets: Xavi besti spænski leikmaður sögunnar
Besti leikmaður Spánar frá upphafi?
Besti leikmaður Spánar frá upphafi?
Mynd: Getty Images
Spænski miðvallarleikmaðurinn Sergio Busquets fer fögrum orðum um félaga sinn Xavi.

Busquets þarf nú að undirbúa sig fyrir líf án Xavi en samkvæmt nýjustu fréttum ku Xavi vera á leið til Katar næsta sumar.

,,Síðan ég byrjaði ferilinn minn hef ég alltaf verið nálægt Xavi.” segir Busquets.

Ekki nóg með að Busquets þurfi að sjá á eftir Xavi á Nou Camp þá er hann einnig hættur að spila með landsliðinu en Xavi hefur verið lykilmaður í velgengni spænska landsliðsins undanfarin áratug.

,,Við höfum alltaf verið sigursælir saman og Xavi hefur verið fyrirmynd fyrir okkur alla. Hann er besti spænski leikmaðurinn frá upphafi að mínu mati.” segir Busquets.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner