Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. mars 2015 07:30
Elvar Geir Magnússon
Landsliðsmenn ánægðir með Fúsa
Icelandair
Mynd: KSÍ
Kvöldið fyrir leik Íslands gegn Kasakstan buðu aðstandendur nýrrar íslenskrar kvikmyndar upp á sérstaka forsýningu fyrir strákana okkar.

Um er að ræða myndina "Fúsi" sem er frumsýnd í kvikmyndahúsum nú um helgina en Dagur Kári er leikstjóri.

„Voru landsliðsmennirnir afar ànægðir með þessa flottu mynd," segir á Facebook-síðu KSÍ en Gunnar Jónsson fer með aðalhlutverkið. Hér að neðan má sjá trailer myndarinnar.

Ísland vann Kasakstan 3-0 eins og allir lesendur vita en í dag ferðast liðið til Frankfurt í Þýskalandi þar sem gist verður í eina nótt áður en haldið verður til Eistlands á mánudag en þar fer fram vináttuleikur gegn heimamönnum á þriðjudaginn.

SkjárSport sýnir þann leik í beinni útsendingu og opinni dagskrá.


Athugasemdir
banner
banner