Sóknarmaðurinn Neymar er alls ekki ánægður með þá meðferð sem hann fékk í vináttulandsleik Brasilíu gegn Síle á Emirates leikvangnum.
Roberto Firmino tryggði Brasilíu 1-0 sigur í þessum óvinalega vináttuleik, en helsta umræðuefnið úr leiknum var þegar Gary Medel traðkaði á Neymar.
Neymar var alls ekki ánægður með meðferðina sem hann fékk frá þessum miðjumanni Inter og kvartaði einnig undan dómurunum.

,,Þetta var ekki fótboltaleikur. Þetta á að vera fótbolti, ekki UFC," sagði Neymar reiður.
,,Dómarinn er hérna til að koma í veg fyrir að svona hlutir gerist, en þeir voru fjórir og enginn þeirra sá neitt!"
Medel þvertók fyrir að hafa stigið viljandi á Neymar og lét hann heyra það á Twitter. Skrifaði hann:
,,Tæklingar eru eðlilegar í fótbolta. Sumir leikmenn eru með leiksýningar,a ðrir spila fótbolta... það er synd að það geta ekki bara allir spilað leikinn."
Athugasemdir