Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. mars 2015 20:30
Alexander Freyr Tamimi
Smalling til í að vera áfram hjá United í mörg ár
Smalling ræðir málin við Mario Balotelli.
Smalling ræðir málin við Mario Balotelli.
Mynd: Getty Images
Chris Smalling, varnarmaður Manchester United, segist vilja vera áfram hjá félaginu eins lengi og það vill hafa hann.

Enski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við Arsenal að undanförnu, en samningur hans rennur út eftir næsta tímabil.

,,Ég hef ekki rætt samningamál við neinn," sagði Smalling.

,,Stjórinn hefur trú á mér og ef ég fæ að spila er ég ánægður. Við eigum átta leiki eftir í deildinni og viljum enda eins vel og við getum."

,,Ég sé fyrir mér að vera hjá United í mörg ár í viðbót. Ég nýt mín hérna og hef alltaf notið þess að spila fyrir United, sérstaklega í augnablikinu. Ef ég fæ að spila er ég til í að vera hérna eins lengi og þeir vilja hafa mig."


Athugasemdir
banner
banner
banner