Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. mars 2015 13:30
Arnar Geir Halldórsson
Torres og Suarez á bekknum á Anfield í dag
Suarez er mættur aftur á Anfield
Suarez er mættur aftur á Anfield
Mynd: Getty Images
Torres sömuleiðis
Torres sömuleiðis
Mynd: Getty Images
Það verður mikið um dýrðir á Anfield í Liverpool í dag.

Liverpool goðsagnirnar Steven Gerrard og Jamie Carragher hafa sett saman draumalið sem munu mætast í góðgerðarleik á Anfield í dag klukkan 2.

Það eru nokkur stór nöfn á meðal leikmanna en tveir af farsælustu framherjum Liverpool á síðasta áratug eru á bekknum í liði Gerrard.

Þá snúa Spánverjarnir Xabi Alonso, Luis Garcia og Pepe Reina aftur á Anfield svo einhverjir séu nefndir en einnig eru nokkrir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni og ber þá helst að nefna John Terry og Didier Drogba.

Byrjunarlið Steven Gerrard: Brad Jones, Anthony Gerrard, Glen Johnson, John Terry, John Arne Riise, Kevin Nolan, Steven Gerrard, Xabi Alonso, Ryan Babel, Thierry Henry, Jerome Sinclair.
Varamannabekkur:Scott Dann, Ashley Williams, Luis Suarez, Fernando Torres, Charlie Adam, Jay Spearing, Stephen Warnock, Joao Carlos Teixeira.

Byrjunarlið Jamie Carragher:Pepe Reina, Jon Flanagan, Jamie Carragher, Alvaro Arbeloa, Martin Kelly, Harry Kewell, Stewart Downing, Lucas, Jonjo Shelvey, Didier Drogba, Mario Balotelli.
Varamannabekkur:Peter Gulacsi, Luis Garcia, Craig Noone, Alberto Moreno, Gael Clichy, Fabio Borini, Craig Bellamy.

Fyrir þá sem hafa aðgang að LFCTV þá er leikurinn sýndur í beinni útsendingu þar og hefst eins og áður segir eftir hálftíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner