Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 29. mars 2017 09:00
Kristófer Kristjánsson
Mikill eldur á heimavelli Tevez í Kína
Carlos Tevez sefur kannski minna eftir þetta
Carlos Tevez sefur kannski minna eftir þetta
Mynd: Getty Images
Mikill eldur braust út á Hongkou vellinum í Shanghai í gær en völlurinn tilheyrir kínverska Ofurdeildarliðinu Shanghai Shenhua sem Carlos Tevez spilar fyrir og Gus Poyet þjálfar.

Samkvæmt fjölmiðlum erlendis náði eldurinn ekki út á grasvöllinn sjálfan en rannsókn á málinu stendur nú yfir.

Aðrir fyrrverandi leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar sem nú spila fyrir Shenhua eru þeir Demba Ba og Obafemi Martins.

Kínverska Ofurdeildin hófst fyrr í mánuðinum og átti Shenhua að spila næst á vellinum þann 16. apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner