Giampiero Ventura, landsliðsþjálfari Ítalíu, segir að sínir menn muni koma mörgum til undrunar á HM í Rússlandi á næsta ári.
Þetta sagði hann eftir 2-1 sigur á Hollandi í vináttuleik í gærkvöldi en mörk frá Eder og Leonardo Bonucci tryggðu Ítölum sigur á Amsterdam Arena eftir að Alessio Romagnoli hafði skorað sjálfsmark.
„Að vinna í kvöld var mikilvægt fyrir þá ímynd sem við erum að skapa og það hugarfar sem við erum að þróa," sagði Ventura eftir leikinn.
„Þessi leikmannahópur er að vaxa með hverjum leiknum. Við munum koma öllum á óvart á HM í Rússlandi ef við komumst þangað."
Ítalía er í öðru sæti G riðils, fyrir neðan Spánverja á markatölu en efsta liðið kemst beint til Rússlands á meðan átta bestu liðin í 2. sætum riðlanna, af níu, keppa í umspili.
Athugasemdir