Fyrrum landsliðsmaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson hefur gengið til liðs við KFG í 4. deildinni.
Brynjar verður löglegur með KFG í Borgunarbikarnum í leiknum gegn Ægi sem fram fer á Samsungvelli í kvöld.
Brynjar Björn lék síðast með KR í Pepsi-deildinni árið 2013 en hann hefur nú ákveðið að taka fram skóna.
„Brynjar Björn sem er aðstoðarþjálfari Pepsí deildar liðs Stjörnunnar, tók þátt í æfingum Stjörnunnar á Spáni um páskana og hafði þá engu gleymt og kemur vel undan vetri. Brynjar Björn mun styrkja lið KFG verulega í baráttunni á toppi 4. deildar," segir í fréttatilkynningu frá KFG.
Brynjar Björn er fertugur en hann spilaði á sínum tíma 74 leiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim fjögur mörk.
Athugasemdir