4.deildarlið ÍH hefur verið að styrkja sig fyrir átök sumarsins á síðustu dögum. Fjórir leikmenn hafa gengið til liðs við félagið frá 1.deildarliði Hauka.
Ísak Örn Einarsson sem leikið hefur með ÍH síðustu þrjú ár hefur snúið aftur til ÍH eftir stutt stop hjá Haukum.
Þórarinn Jónas Ásgeirsson sem lék fjóra leiki með Haukum í 1. deildinni seinna hluta sumars í fyrra eftir að hafa spilað 12 leiki með Víði í 3. deildinni hefur verið lánaður til ÍH auk markvarðarins Magnús Þórs Gunnarssonar sem leikið hefur með Haukum og BÍ/Bolungarvík á sínum ferli.
Að lokum gekk hinn tvítugi Gylfi Steinn Guðmundsson einnig til liðs við ÍH.
ÍH heimsækir Víði Garði í fyrstu umferð Borgunarbikarsins á morgun. Allir eru þeir löglegir með liðinu í þeim leik.
Athugasemdir