Sporting Gijon 2 - 0 Eibar
1-0 Carlos Carmona ('43 )
2-0 Jony ('82 )
1-0 Carlos Carmona ('43 )
2-0 Jony ('82 )
Sporting Gijon vann afar mikilvægan sigur á Eibar í fyrsta leik helgarinnar í spænska boltanum.
Carlos Carmona kom Sporting yfir undir lok fyrri hálfleiks og skömmu áður en flautað var til leiksloka tryggði Jony þeim sigurinn.
Sporting er þar með komið úr fallsæti og situr nú í 17.sæti með 35 stig en Granada er í næsta sæti fyrir neðan og getur sent Sporting aftur á fallsvæðið með því að sigra Las Palmas á morgun.
Eibar siglir lygnan sjó um miðja deild en liðið situr í 11.sæti.
Athugasemdir