Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 29. apríl 2016 19:05
Arnar Geir Halldórsson
Þýskaland: Jón Daði spilaði í stórsigri
Jón Daði í leik með Kaiserslautern
Jón Daði í leik með Kaiserslautern
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn í framlínu Kaiserslautern þegar liðið heimsótti Frankfurt í þýsku B-deildinni í kvöld.

Frankfurt er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni á meðan Jón Daði og félagar sigla lygnan sjó um miðja deild.

Svo fór að Kaiserslautern vann öruggan þriggja marka sigur þrátt fyrir að hafa lent undir strax á 5.mínútu.

Jón Daði hefur spilað 13 leiki fyrir Kaiserslautern síðan hann gekk í raðir félagsins í byrjun þessa árs og skorað tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner