Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, segir að þær sögusagnir að hann sé á leiðinni til Barcelona séu ekki sannar.
Ramsey hefur verið sterklega orðaður við Barcelona og er talið að Barcelona vilji borga 70 miljónir evra fyrir leikmannin.
Ramsey hefur verið sterklega orðaður við Barcelona og er talið að Barcelona vilji borga 70 miljónir evra fyrir leikmannin.
Ramsey skoraði 6 mörk og lagði upp jafn mörg á þessu tímabili í ensku deildinni og var lykilmaður hjá liðinu.
Ramsey segir að hann sé ekki að einbeita sér að þessum sögum heldur eingöngu að leiknum gegn Aston Villa á laugardaginn í úrslitum FA-Bikarsins.
„Þetta er bara eitthvað sem hefur verið skrifað í blöðin. Það eina sem ég er að hugsa um núna er leikurinn á móti Aston Villa.“
Athugasemdir