Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. maí 2015 08:00
Daníel Freyr Jónsson
Leicester hefur áhuga á Coates
Sebastian Coates.
Sebastian Coates.
Mynd: Getty Images
Leicester City er að undirbúa tilboð í varnarmanninn Sebastian Coates, leikmann Liverpool, samkvæmt breskum fjölmiðlum.

Coates virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá Brendan Rodgers, stjóra Liverpool, og lék hann með Sunderland sem lánsmaður í vetur.

Þessi 24 ára gamli úrúgvæski landsliðsmaður spilaði þó einungis 10 leiki með Sunderland í vetur.

Coates kom til Liverpool frá Nacional árið 2011 og á að baki 12 deildarleiki með Rauða hernum.
Athugasemdir
banner
banner
banner