Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 29. maí 2015 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn sömdu við ÍBV
Frá undirskriftinni.
Frá undirskriftinni.
Mynd: Aðsend
Um helgina skrifuðu þrír leikmenn ÍBV undir samning við félagið. Þetta eru þær Þórey Helga Hallgrímsdóttir, markvörðurinn Holly Clarke sem verður hér þar til hún þarf að snúa aftur til náms í Bandaríkjunum og María Davis.

Með þeim á myndinni eru Sigþóra Guðmundsdóttir formaður knattspyrnuráðs kvenna og Jóhanna Inga Jónsdóttir eigandi 900 Grillhús.

María og Þórey eru ungir og efnilegir leikmenn sem vonandi láta mikið af sér kveða í framtíðinni.

María glímir reyndar þessa stundina við erfið meiðsl en vonandi verður hennar bati sem bestur.

Í leiðinni skrifaði knattspyrnuráð kvenna og 900 Grillhús undir samstarfssamning sín á milli en 900 Grillhús styður dyggilega við bakið á knattspyrnu kvenna.
Athugasemdir
banner
banner
banner