Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 29. maí 2015 07:30
Daníel Freyr Jónsson
United mun halda Di Maria og Van Persie
Angel Di Maria er ekki á förum frá United samkvæmt Daily Express.
Angel Di Maria er ekki á förum frá United samkvæmt Daily Express.
Mynd: Getty Images
Robin van Persie og Angel Di Maria verða hvorugir seldir frá Manchester United í sumar.

Þetta fullyrðir Daily Express, en báðir leikmennirnir hafa verið sagðir á förum frá félaginu eftir slaka frammistöðu þeirra á tímabilinu.

Di Maria kom frá Real Madrid á síðasta ári og er hann dýrasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni. Hann fór vel af stað, en var ekki skugginn af sjálfum sér stóran hluta leiktíðar eftir að brotist var inn til hans.

Þá hefur Van Persie verið mikið meiddur undanfarna mánuði en stjóri hans og samlandi, Louis Van Gaal, er þó sagður ætla að halda honum.

Di Maria hefur verið orðaður við bæði PSG og FC Bayern undanfarna daga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner