Almarr Ormarsson lék allan leikinn þegar KA vann 1-0 sigur á Leikni F. í Inkasso deildinni í dag en leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.
Ásgeir Sigurgeirsson gerði eina mark KA og segir Almarr að liðið geti spilað betur.
„Ég er sáttur með stigin þrjú en ekki alveg nógu sáttur með leikinn okkar," sagði Almarr.
Almarr ólst upp hjá KA áður en hann hélt í höfuðborgina þar sem hann lék með Fram og KR í nokkur ár. Hann gekk til liðs við uppeldisfélagið í vetur og þegar hann var spurður út í eigin frammistöðu hafði hann þetta að segja.
„Allt í lagi. Ég á ennþá meira inni og mér finnst ég ekki byrja þetta tímabil nógu vel. Mér finnst ég vera að skána með hverjum leiknum og komast aðeins betur inn í þetta."
Athugasemdir