Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 29. maí 2016 22:37
Magnús Þór Jónsson
Bjarni Guðjóns: Les lítið af þessum skrifum
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„2-1 eru fín úrslit á móti rándýru og metnaðarfullu liði Vals sem ætlaði sér alla leið í sumar eins og fleiri lið. Sigurinn var sætur," sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, eftir 2-1 sigur á Val í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 2 -  1 Valur

„Það sem hefur vantað hjá okkur er að ná fyrsta markinu því þá gjörbreytast leikirnir. Liðin þurfa þá að koma aðeins meira úr skelinni og sækja á móti okkur."

KR-ingar fögnuðu sigrinum í kvöld vel eins og sjá mátti á myndbandi á Twitter síðu félagsins.

„Auðvitað er gaman að vinna og við viljum vinna þessa leiki sem við erum að spila. Fagnaðarlætin koma af því að menn gáfu allt og skildu allt eftir hér í kvöld. Þá verður sigurinn alltaf aðeins sætari. Það skemmir ekki fyrir að þetta var Valur,"

Eftir sex stig í fyrstu fimm umferðunum í Pepsi-deildinni, áður en kom að leiknum í kvöld, og tap gegn Selfyssingum í Borgunarbikarnum þá hefur Bjarni legið undir gagnrýni.

„Þetta er hluti af starfinu. Það er bara svoleiðis. Hér er krafan meiri en 6 stig af 15 leikjum. Ég les lítið af þessum skrifum sem þú ert að vitna í. Það þýðir lítið fyrir mig að velta mér upp úr svoleiðis hlutum. Ég þarf að vinna vinnuna mína og gera það samviskulega með því að undirbúa liðið eins vel og við getum," sagði Bjarni.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner