Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 29. maí 2016 11:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Draumaliðsdeild Azazo - Markaðurinn opinn á ný
Frá tilkynningu Azazo draumaliðsdeildarinnar
Frá tilkynningu Azazo draumaliðsdeildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
 Elísa VIðarsdóttir hefur staðið sig vel hingað til.
Elísa VIðarsdóttir hefur staðið sig vel hingað til.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net og AZAZO standa í fyrsta skipti fyrir Draumaliðsdeild kvenna í sumar. Nú er 4. umferð lokið og búið að opna markaðinn upp á nýtt.

Glæsilegir vinningar í boði frá KSÍ, Símanum, 365 og fleiri fyrirtækjum.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Reglurnar eru þær sömu og hafa verið í Draumaliðsdeildinni í Pepsi-deild karla undanfarin ár.

Hægt er að kaupa og selja leikmenn ótakmarkað og gera breytingar á liðinu áður en leikmannaglugginn lokar klukkan 12:00 á laugardaginn, klukkutíma fyrir fyrsta leik í 4. umferðinni.

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í Draumaliðsdeild Eyjabita í Pepsi-deild karla. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Nú verður gert tæplega mánaðar hlé á deildinni sökum EM í Frakklandi og verður næsta umferð spiluð 24. og 25. júní.

Leikirnir föstudaginn 24. júní :
17:15 ÍBV - ÍA
19:15 KR - Selfoss
Leikirnir laugardaginn 25.júní:
14:00 Breiðablik - Fylkir
14:00 FH - Þór/KA
16:00 Stjarnan - Valur

Um AZAZO
AZAZO er íslenskt hugbúnaðar- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í stjórnun og varðveislu upplýsinga og gagna. Fyrirtækið hefur þróað upplýsinga- og verkefnastjórnunarkerfið AZAZO CoreData sem er notað af mörgum af stærstu fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi. AZAZO býður einnig upp á sjálfstæðar lausnir eins og AZAZO Sign, rafrænar undirskriftir og AZAZO BoardMeeting, sérstaka vefgátt fyrir starfsemi stjórna fyrirtækja auk annara sértækra lausna. Ráðgjafasvið AZAZO aðstoðar við hugbúnaðarinnleiðingu og veitir ráðgjöf við hagræðingu og skilvirkni í rekstri. Vörslusetur fyrirtækisins sérhæfir sig í meðhöndlun og varðveislu gagna í sérhæfðu 4500 m2 húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Hjá Azazo starfa um 50 manns í sex löndum. Forstjóri er Brynja Guðmundsdóttir, hún er jafnframt stofnandi fyrirtækisins.
Athugasemdir
banner
banner
banner