Frank Lampard segist hafa mikla trú á Jose Mourinho hjá Chelsea og segir hann geta komið með ákveðinn x faktor í liðið á ný.
Mourinho var staðfestur sem nýr stjóri hjá United í vikunni og á hann að koma með góðu tímana aftur á Old Trafford eftir aðeins einn bikar á þrem árum eftir að Sir Alex Ferguson yfirgaf liðið.
„Jose mun gera mikið fyrir United. Hann veit hvernig á að búa til vinningslið og setja sinn stimpil á það. Maður sér persónuleikann hans í liðunum hans og Manchester United hefur vantað það."
„Þeir eru með mikil gæði í leikmannahópnum en hann mun einnig koma með sína leikmenn inn. Jose mun gefa þeim x factor. Hann gerði það hjá Chelsea, ég veit það endaði ekki fullkomlega en ég sé hann ná langt með United," sagði Lampard.
Athugasemdir