Hannover hefur tilkynnt að Ron-Robert Zieler, markmaður liðsins hafi fengið leyfa til að ferðast til Leicester til að ganga frá félagsskiptum sínum.
Þjóðverjinn er á leiðinni til Englands til að ræða kaup og kjör ásamt því að fara í læknisskoðun.
Zieler var á árum áður í herbúðum Manchester United en hann á tæplega 200 leiki með Hannover.
Liðið féll hins vegar á leiktíðinni eftir að hafa lent í neðsta sæti, þýsku deildarinnar.
Athugasemdir