Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. maí 2016 22:14
Fótbolti.net
Godsamskipti
KR-ingar unnu mikilvægan sigur í kvöld.
KR-ingar unnu mikilvægan sigur í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Fótbolti.net
Twitter umræðan er alltaf lífleg á Pepsi-deildar kvöldum, meðal annars undir #fotboltinet. Kíkjum á brot af umræðu kvöldsins.



Þórir Hákonarson
Giskum bara á hvað gerist í leikjum og dæmum, er það ekki bara fínt? # pepsi2016 # lifi # hjartaðíreykjavík

Hrafn Kristjánsson
Fullt af nauðsynlegum og réttum breytingum á KR-liðinu. Óskar í holunni og Præst á bekknum strax mikil bæting #pepsi365

Ólafur Páll Johnson
Morten upp á topp og Finnur að spila sína stöðu að skipta sköpum hjá KR í dag #alltannað #allirsemeinn #pepsi365

Rúnar Már Sigurjonsson
Haukur Páll besti senter deildarinnar

Ómar Ingi Guðmundsson
Rasmus var bara í hálstaki hjá KR ing á meðan þeir skora seinna markið, eðlilega ekkert dæmt samt

Tómas Árni Ómarsson
Þvílíkur skellur fyrir þessa þunnhærðu að fá rigningu í sjónvarpsleik. Nokkrir á síðustu millimetrunum þarna. #Pepsi365 #fotboltinet

Jón Haukur Baldvinsson
Af sem áður var! Engin stemmning á KR-Valur,fullt af lausum sætum í stúkunni. Stjarnan-FH hafa tekið við stórveldaslagskeflinu #fotboltinet

Birgir Þór Björnsson
Finnur Orri á miðjuna í þessum leik, það er fact #fotboltinet

Lárus Jón
Stemmningin á KR vellinum er svo ógeðslega léleg. Lætur okkur í stuðningsmannasveit Fram bara líta ágætlega út #fotboltinet

Heiða Rakel
Djöfull voru Þróttarar góðir í kvöld!! Manni færri en áberandi betri allan lekinn #lifi #fotboltinet

Elvar Magnússon
Sturluð staðreynd það eru fleiri leikmenn ì byrjunarliði vals sem eru uppaldnir ùr umfa en val #fotboltinet

Marella Steinsdottir
Klárt rautt, viljandi snerting á kynfæri annars leikmanns. Hefði endað í slagsmálum ef þetta væri á skemmtistað !#fotboltinet #pepsi365

Óskar Smári
Ef þetta er rautt að þá fengi ég rautt i sturtunni eftir hverja einustu æfingu #soft #smatyppstog #fotboltinet

Einar Guðnason
Óttar Magnús var yfirburðar maður á Víkingsvellinum í kvöld.

Sóli Hólm
Það er vandræðalegt hvað Indriði Sig er langbesti miðvörðurinn í þessari deild.








Athugasemdir
banner
banner