Viðar Jónsson, þjálfari Leiknis F., var að vonum svekktur eftir að hafa séð sína menn lúta í lægra haldi fyrir KA í Inkasso deildinni í dag.
Þrátt fyrir tapið var Viðar sáttur með vinnuframlag sinna manna og segir liðið vera á réttri leið.
„Við erum með bakið upp við vegg og búnir að tapa þrem leikjum þegar við mætum í þennan leik. Við sýnum alveg þvílíkt hjarta og ég er gríðarlega stoltur af mínu liði í dag. Við erum á réttri leið, það er alveg klárt mál," sagði Viðar.
Leiknismenn eru stigalausir eftir fjóra leiki og viðurkennir Viðar að það sé áhyggjuefni.
„Auðvitað væri fáranlegt að segja að það væri bara allt í góðu. Auðvitað skipta stigin máli og við erum hérna á okkar heimavelli. Það er það vígi sem við viljum treysta á til að fá stig," sagði Viðar.
Athugasemdir