Ísland vann bronsverlðaun á Norðurlandamóti Lögreglumanna í fótbolta í síðustu viku.
Noregur, Danmörk, Finnland og Ísland tóku þátt í mótinu en Svíar voru ekki með að þessu sinni.
Ísland sigraði Danmörku 1-0 í síðustu viku en það var fyrsti sigur Íslands á mótinu síðan árið 1991.
Andri Fannar Helgason, markvörður íslenska liðsins, var í stuði á mótinu en hann var valinn besti leikmaður mótsins.
Andri Fannar var á sínum tíma markvörður Þróttar en hann lék síðast með KV í 2. deildinni árið 2010.
Athugasemdir