Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 29. júní 2015 21:26
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
BBC: United með tilboð í Ramos
Van Gaal er ákveðinn í að landa Ramos.
Van Gaal er ákveðinn í að landa Ramos.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur gert 28,6 milljón punda tilboð í varnarmanninn Sergio Ramos hjá Real Madrid. BBC greindi frá þessu nú í kvöld.

Ramos hefur verið sterklega orðaður við United undanfarna daga og fór hann fram á sölu frá Real Madrid fyrr í dag.

Þessi spænski landsliðsmaður kom til Real frá Sevilla fyrir áratug síðan. Hefur hann síðan þá meðal annars orðið Evrópumeistari með félaginu og í heildina leikiið 445 leiki.

Þá á hann að baki 128 leiki með spænska landsliðinu og var lykilmaður í liðinu sem varð Evrópumeistari í tvígang, auk þess sem hann varð heimsmeistari með Spánverjum árið 2010.
Athugasemdir
banner