Björgvin Karl þjálfari KR var brattur eftir jafntefli við Selfoss í Pepsideildinni í kvöld. KR hafði yfirhöndina í leiknum lengi vel áður en Selfyssingar náðu að jafna leikinn undir lok.
„Það hefði verið gaman að stela sigri héðan. Það lá nú töluvert á okkur í dag og mjög erfiður leikur fyrir okkur. Við vorum að verjast ágætlega og augnabliks mistök verða til þess að við fáum á okkur þetta mark."
KR-ingar hafa verið í miklum markmannsvandræðum í sumar en liðið hefur fengið undanþágu til þess að semja við markmann. Hún var þó ekki í hóp í dag.
„Nei, hún er ekki komin enda var sá fréttaflutningur mjög skrítinn. Menn ættu kannski að afla sér smá upplýsingar áður en þeir birta fréttir. Það er búið að ákveða að fá hana, það var gert í dag. Hún þarf að vera helvíti góð ef hún ætlar að veita þessum útileikmanni keppni."sagði Björgvin um markmannsmálin
Viðtalið við Björgvin má sjá hér að ofan.
Athugasemdir