Emre Can, leikmaður Liverpool, hefur svarað þeim sem hafa gagnrýnt pizzuát hans fyrir 5-0 tap gegn Portúgal í undaúrslitum á EM U21 árs landsliða.
Can og liðsfélagar hans Moritz Leitner, Leonardo Bittencourt, Nico Schulz og Yunus Mall skelltu sér í pizzuveislu fyrir leikinn og birtu mynd á Instagarm.
Can og liðsfélagar hans Moritz Leitner, Leonardo Bittencourt, Nico Schulz og Yunus Mall skelltu sér í pizzuveislu fyrir leikinn og birtu mynd á Instagarm.
Leikmennirnir hafa verið gagnrýndir fyrir mataræði sitt fyrir tapið gegn Portúgal.
„Að fara út að borða og fá sér pizzu er eðllegt," sagði Can sem vildi ekki kenna pizzuátinu um tapið.
„Aftur á móti hélt ég kannski fyrir þennan leik að ég væri bestur. Ég þarf að koma mér aftur niður á jörðina."
Athugasemdir