Heimild: Vísir.is
ÍBV mun leika án sín sterkasta framherja, Jonathan Glenn, í næstu leikjum þar sem hann mun spila með landsliði Trínidad og Tóbagó.
Þetta kom fram í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld.
Þetta kom fram í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld.
Glenn hefur skorað í fjórum af síðustu fimm leikjum og er því ljóst að þetta er talsvert áfall fyrir Eyjamenn.
Framherjinn öflugi var valinn í hóp í landsliðið fyrir þáttöku þess í Gullbikarnum sem fram fer í Bandaríkjunum og Kanada frá 7. til 26. júlí. Er þetta álfumót Mið- og Norður-Ameríku.
Trínidad og Tóbago er með Mexíkó, Gvatemala og Kúbu í riðli. Fyrsti leikur liðsins í riðlakeppninni er 9. júlí og sá síðasti sex dögum síðar.
Athugasemdir