Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mán 29. júní 2015 22:10
Arnar Daði Arnarsson
Jörundur Áki: Vonandi hleypur þetta líf í okkur
Jörundur Áki þjálfari Fylkis.
Jörundur Áki þjálfari Fylkis.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkisliðið vann góðan 4-0 sigur á Aftureldingu á heimavelli í 8. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Fyrsti sigur liðsins í deildinni frá því í fyrstu umferðinni.

Þrjú stig munaði á liðunum fyrir leikinn, en Fylkir sýndi það í leiknum að þær hafa verið að spila langt undir getu í síðustu leikjum. Það var því mikill léttir fyrir Jörund Áka þjálfara Fylkis að hafa stjórnað liðinu loks, til sigurs í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 4 -  0 Afturelding

„Við náðum aðeins að fylgja eftir góðum seinni hálfleik gegn ÍBV. Ég var virkilega ánægður með stelpurnar í dag. Þetta var sanngjarn og sannfærandi sigur í dag."

„Við fengum þónokkuð af góðum færum og vorum að opna þær mjög vel. Við vissum að þetta yrði þolinmæðisleikur og þær eru þéttar til baka og eru að berjast fyrir lífi sínu í þessari deild. Við vissum að þetta gæti orðið erfitt en mér fannst við hafa góð tök af leiknum allan leikinn," sagði Jörundur sem vonast til að þetta muni gefa þeim eitthvað í kjölfarið.

„Þetta hefur verið svolítið erfitt hjá okkur undanfarið. Vonandi hleypur þetta smá lífi í okkur og gefur okkur sjálfstraust í framhaldinu. Við eigum bikarleik gegn Grindavík og við erum strax farin að hugsa út í þann leik," sagði Jörundur Áki að lokum.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner